322. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurnesja, haldinn að Skógarbraut 945, Reykjanesbæ, miðvikudaginn 4. febrúar 2026, kl. 16:00.

Mætt: Ingvi Þór Hákonarson, formaður, fulltrúi Reykjanesbæjar, Margrét Sæmundsdóttir, fulltrúi Reykjanesbæjar, Hlynur Þór Valsson, fulltrúi Suðurnesjabæjar, Eva Lind Matthíasdóttir, fulltrúi Grindavíkur og Hólmgrímur Rósenbergsson, fulltrúi Sveitarfélagins Voga, auk starfsmanna Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja: Ásmundur E. Þorkelsson, framkvæmdastjóri (fundarritari), J. Trausti Jónsson, Sonja Hrund Steinarsdóttir, Helgi Haraldsson og Eydís Martinsdóttir. Bergþóra Sigurjónsdóttir, fulltrúi atvinnurekenda kom ekki á fundinn.

Dagskrá:

  1. Yfirlit yfir störf HES
  2. Starfsleyfi og skráningar
  3. Frumvarp til laga um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga
  4. Beiðni Fjárskyn ehf. / Dubliners um breytingu á starfsleyfi
  5. Umhverfismál / umgengni á lóðum
  6. Lesið fyrir hund á Bókasafni Reykjanesbæjar
  7. Starfsmannamál
  8. Önnur mál

Formaður setti fundinn og gengið var til dagskrár.

1. Yfirlit yfir störf HES

Starfsmenn fóru yfir helstu verkefni sem hafa verið á döfinni frá síðasta fundi heilbrigðisnefndar.

2. Starfsleyfi og skráningar

Í samræmi við bókun nefndarinnar undir 4. tl. á 320. fundi er lögð fram fundargerð afgreiðslufundar embættisins (sjá viðhengi). Nefndin staðfestir fundargerðina.

3. Frumvarp til laga um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga 

Þann 26. janúar sl. lagði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum í samráðsgátt stjórnvalda.

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits, þar sem gert er ráð fyrir að færa verkefni heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til ríkisins frá 1. janúar 2027, að frátöldum fáeinum en mikilvægum verkefnum sem flytjast á forræði sveitarfélaga.

Nefndin telur að fyrirliggjandi frumvarp og undirbúningur málsins uppfylli ekki þær kröfur sem gera verður til vandaðrar löggjafar, heildstæðrar greiningar og raunhæfrar innleiðingar. Ekki liggur fyrir fullnægjandi mat á áhrifum breytinganna á lýðheilsu, matvælaöryggi, viðbragðsgetu eftirlits, þjónustu við íbúa og rekstraraðila, né fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. Látið er hjá líða að ávarpa raunverulega hættu á þjónusturofi og slælegu eftirliti sem gæti varað í nokkur misseri. Þá er ekki hugað nægilega vel að möguleikum sveitarfélaga til gjaldtöku og íhlutunar vegna þeirra verkefna sem þau munu hafa með höndum, verði frumvarpið að lögum.

Heilbrigðisnefndin bendir á að fyrirhugað fyrirkomulag felur í sér uppbrot eftirlits milli ríkisstofnana, lengri boðleiðir, aukna hættu á tvíverknaði og verulega áhættu á þjónusturofi á sviðum sem varða lífsgæði og öryggi almennings. Slíkt er að mati nefndarinnar í andstöðu við meginmarkmið laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og laga um matvæli, þar sem lögð er áhersla á forvarnir, nærþjónustu og skýra ábyrgð.

Nefndin telur sérstaklega alvarlegt að fyrirhugað sé að færa tekjuberandi verkefni til ríkisins á meðan kostnaðarsöm verkefni sem ekki gefa af sér tekjur eru skilin eftir hjá sveitarfélögunum, án þess að fyrir liggi skýr mynd af verkaskiptingu, fjármögnun eða ábyrgð.

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja hafnar því að ráðist verði í svo róttæka kerfisbreytingu á jafn skömmum tíma og við núverandi óvissu. Nefndin hvetur stjórnvöld eindregið til að staldra við, draga frumvörpin til baka í núverandi mynd og beina kröftum að því að efla og bæta núverandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga með markvissri samræmingu, skýrari reglum og faglegum stuðningi ríkisstofnana. Nefndin telur að slík leið sé bæði skynsamlegri, hagkvæmari og öruggari með hagsmuni íbúa, atvinnulífs og lýðheilsu að leiðarljósi.

4. Beiðni Fjárskyn ehf./ Dubliners um breytingu á starfsleyfi

Fjárskyn ehf. óskaði eftir rökstuðningi og endurskoðun á skilyrðum með starfsleyfi til að reka veitingastað að Hafnargötu 30, Reykjanesbæ með bréfi dags. 10. desember sl. Um rökstuðning er vísað til greinargerðar með starfsleyfinu sem afhent var starfsleyfishafa á sínum tíma. Heilbrigðisnefnd telur með tilkomu reglugerðar nr. 689/2025, þegar starfsleyfiskylda veitingastaða var afnumin og við tók skráningarskylda, hafi þau skilyrði sem heilbrigðisnefnd setti fyrir útgáfu starfsleyfis fallið úr gildi.

5. Umhverfismál / umgengni á lóðum

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja felur Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja að sjá um framkvæmd lóðahreinsana við fyrsta hentugleika og á kostnað eiganda, samkvæmt lögum nr. 7/1998, á neðangreindri lóðinni:

Reykjanesbær

Berghólabraut 9

6. Lesið fyrir hund á Bókasafni Reykjanesbæjar

Vísað er til erindis bókasafnsins þar sem óskað er leyfis til að koma með hund inn á bókasafnið, þar sem börn geta æft sig í lestri undir áheyrn hundsins. Nefndin felur heilbrigðiseftirlitinu að samþykkja erindið með viðeigandi skilyrðum.

7. Starfsmannamál

Starfsmenn að frátöldum framkvæmdastjóra viku af fundi undir þessum dagskrárlið.

Nefndin felur framkvæmdastjóra að gera ráðningarsamning við Berg Sigurðsson um að sinna tímabundið starfi heilbrigðisfulltrúa.

8. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira var ekki gert og fundi slitið klukkan 17:30