Mengunarvarnareftirlit

Leiðarljós mengunarvarnareftirlits er að stuðla að heilnæmu, öruggu og ómenguðu umhverfi á Suðurnesjum. Mengunarvarnareftirlitið framfylgir lögum og reglum sem undir það heyra.

 

Hlutverk

Mengunarvarnareftirlit annast eftirlit með fyrirtækjum sem eru eftirlits- og starfsleyfisskyld samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Mengunarvarnareftirlitið hefur einnig eftirlit með hávaða.

5. gr. reglugerðar nr. 415/2014„Heil­brigðis­nefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með meðferð, notkun og merkingum efna í starfs­leyfis­skyldri starfsemi sem heyrir undir þau starfsleyfi sem nefndin gefur út á grund­velli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. 1. mgr. 6. gr. efna­laga.“

Umhverfiseftirlitið sinnir svo eftirliti og kvörtunum vegna umgengni um lóðir og númerslausra bifreiða.

Fyrirspurnir og/eða ábendingar

Vinsamlega hafið samband við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja með því að senda tölvupóst á hes(hjá)hes.is eða hringja í síma 420 3288