Matvælaeftirlit
Leiðarljós matvælaeftirlitsins er að tryggja sem kostur er að neysluvatn og matvæli íbúa á Suðurnesjum séu örugg og heilnæm. Enn fremur, að gætt sé þeirra meginsjónarmiða um verndun þeirra gæða sem felast í ómenguðu neysluvatni og matvælum.
Hlutverk
Hlutverk matvælaeftirlitsins er að annast:
- Eftirlit með öryggi og heilnæmi matvæla í matvælafyrirtækjum
- Eftirlit með öflun og dreifingu neysluvatns og umgengni á brunnsvæðum vatnsverndarsvæða
- Rannsóknir matarsýkinga
- Eftirlit með merkingum, kynningum og auglýsingum matvæla
- Eftirlit með notkun aukefna í matvælum
- Sýnatökur t.d. á neysluvatni, matvælum á markaði og í fyrirtækjum
- Útgáfu starfsleyfa fyrir matvælafyrirtæki
- Undirbúning og dreifingu fræðslu- og leiðbeiningarefnis fyrir matvælafyrirtæki, starfsfólk þeirra og almenning
- Útgáfa tóbakssöluleyfa skv. lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir
Fyrirspurnir og/eða ábendingar
Vinsamlega hafið samband við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja með því að senda tölvupóst á hes(hjá)hes.is eða hringja í síma 420 3288