Auglýsing á starfsleyfi fyrir húðflúrstofu, Hafnargötu 21, 230 Reykjanesbæ
10. 11. 2025
Starfsleyfisskilyrði fyrir jarðborun Grindavíkurbæjar í landi Grindavíkur
19. 11. 2025
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemi Isavia ohf. á Keflavíkurflugvelli. Endurskoðun 2025

Starfsleyfisskilyrði fyrir Isavia ohf., kt. 550210-0370, á Keflavíkurflugvelli til reksturs á skólpdælustöð við Djúpuvík og Flugstöð Leifs Eiríkssonar, umsjón með bílastæðum og ytra umhverfi flugstöðvarinnar, rekstur og viðhald á mengunarvarnabúnaði og kerfum flugvallarins og flugstöðvarinnar. Mengunarvarnir fyrir svæði þar sem mengandi starfsemi fer fram eða önnur mengunarhætta á við um, þ.m.t. mengunarvarnir fyrir flughlöð og brautir, afísingar- og frostvarnasvæði flugvéla, svæði sem ætluð eru til afgreiðslu flugvélaeldsneytis og æfingarsvæðis slökkviliðs. Ennfremur fjallar leyfið um fráveitu flugstöðvarinnar og flughlaða, verkstæði fyrir bifreiðar og tæki félagsins, úrgangsmál, þ.m.t. söfnun og vörslu spilliefna, meðhöndlun á menguðum jarðvegi.

Starfsleyfisskilyrði:

— Sértæk starfsleyfisskilyrði fyrir Isavia ohf., endurskoðun 2025.

Önnur sértæk skilyrði fyrir starfseminni er að finna á bls. 12 í skilyrðunum hér að ofan.

Athugasemdir skulu berast fyrir 15.12.25