Nokkur gosmóða er nú suðvestanlands og á Suðurlandi. Gosmóðan lítur út eins og þokuloft og dregur úr skyggni.
Gosmóða er frábrugðin SO2 gasmengun frá eldgosinu. Gastegundin SO2 losnar í miklum mæli frá eldgosinu og mælist á SO2 gasmælum sem eru víða á SV landi. Gosmóða er hins vega gosmökkur sem er nokkura daga gamall og er núna að koma utan að hafi úr suðaustri. Gastegundin SO2
í gömlum gosmekki hefur að stærstum hluta hvarfast yfir í SO4 agnir sem eru þá ekki lengur gas heldur mjög fínt svifryk. Þar sem SO4 eru agnir mælast þær ekki á SO2 gasmælum heldur eingöngu á svifryksmælum.
Núna í morgun hafa mælst hækkuð gildi á fínu svifryki víða suðvestanlands. Þessar agnir geta verið ertandi fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir. Fólk sem eru viðkvæmt fyrir ætti að forðast óþarfa áreynslu utandyra meðan þetta ástand varir.
Að auki er búist við að SO2 gas frá eldgosinu mælist í dag á svæðinu frá Vogum að Sandgerði.
Á meðfylgjandi mynd má sjá að hækkuð gildi eru á fínu svifryki á suðvesturlandi. Nánar upplýsingar má sjá á https://loftgaedi.is
(Endurbirting á tilkynningu Umhverfisstofnunar frá 21. júlí 2023)
Sjá einnig:
Veðurstofa. Vakt um gasmengun og spá https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/