Auglýsing á starfsleyfi fyrir gististað, Hringbraut 92a, 230 Reykjanesbæ
29. 05. 2026
Skrifstofur Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja lokaðar vegna fundar starfsfólks um óvissu um framtíð starfa og kjara.
Skrifstofur Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja verða lokaðar frá kl. 10:00 til 13:00 mánudaginn 1. júní nk. vegna fundar starfsfólks sem Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur boðað til.
Fundurinn er haldinn með félagsmönnum FÍN sem starfa hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga vegna þeirrar óvissu sem nú ríkir um framtíð heilbrigðiseftirlitsins, störf starfsfólks og kjör þess, í ljósi lagabreytinga sem eru til meðferðar á Alþingi.
Fyrirliggjandi frumvörp fela í sér umfangsmiklar breytingar á skipulagi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Verði þau samþykkt munu verkefni sem nú eru sinnt af heilbrigðisnefndum og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga færast til ríkisstofnana. Starfsfólk heilbrigðiseftirlits hefur hins vegar enn ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um hvernig breytingarnar verða framkvæmdar, hvaða störf verða til, hvar þau verða staðsett eða hvaða áhrif breytingarnar munu hafa á kjör og starfsaðstæður.
Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga sinnir lögbundnu eftirliti með matvælum, hollustuháttum, mengunarvörnum og öðrum þáttum sem varða öryggi, lýðheilsu og umhverfi almennings. Um er að ræða sérhæfð störf þar sem mikil fagþekking, reynsla og staðþekking hefur byggst upp á löngum tíma.
Með fundinum vill Félag íslenskra náttúrufræðinga skapa vettvang fyrir starfsfólk til að fara yfir stöðu málsins, réttindi sín og þá óvissu sem uppi er. Jafnframt er mikilvægt að stjórnvöld geri starfsfólki heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga skýra grein fyrir því hvernig staðið verði að breytingunum og hvaða áhrif þær muni hafa á störf, kjör, starfsstöðvar og framtíð sérfræðistarfa um land allt.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem tímabundin lokun kann að valda. Brýnum erindum verður sinnt eftir því sem unnt er þegar skrifstofur opna að nýju.