Starfsleyfisskilyrði fyrir pretniðnaðarfyrirtæki

 

1. gr. Gildissvið

1. 1. Starfsleyfi þetta gildir fyrir pretniðnaðarfyrirtæki.

1. 2. Ef fyrirtækið skiptir um eigendur, húsnæði eða verður fyrir öðrum meiri háttar rekstrarbreytingum þarf að sækja um starfsleyfi að nýju. Verði á breytingar sem að mati Heilbrigðiseftirlitsins geta leitt til aukinnar mengunar ber að sækja um starfsleyfi að nýju.

1. 3. Heimilt er að endurskoða starfsleyfisskilyrðin ef í ljós koma annmarkar á framkvæmd þeirra. Sama gildir ef fram koma almennar kröfur eða ný tækni er leiða til bættra mengunarvarna.

 

2. gr. Almenn atriði

2. 1. Starfseminni skal þannig hagað að hún valdi ekki nágrönnum eða fólki í nærliggjandi húsakynnum óþægindum vegna lyktar eða ónæðis.

2. 2. Rekstraraðila er skylt að halda húsnæði og lóð snyrtilegu. Sorphirslur og ílát undir úrgang skulu standast kröfur heilbrigðiseftirlitsins.

 

3. gr. Spilliefni

3. 1. Eftirfarandi flokkast sem spilliefni, sbr. mengunarvarnareglugerð nr. 810/1999.

  • Framköllunarefni fyrir lit og svart/hvítar myndir.
  • Festiböð (fixer), einnig þau sem silfur hefur verið unnið úr.
  • Ónýttar og áteknar filmur, filmuafgangar og filmuafskurður ásamt afgöngum og afskurði af ljósmyndapappír.
  • Lífræn hreinsi-,leysi- og þvottaefni.
  • Efni til hreinsunar prentvéla og gróðureyðandi efni fyrir framköllunarvélar og tanka.
  • Lútar og sýrur.
  • Prentlitir og litaleifar.
  • Tuskur og tvistur mengaðar ofannefndum efnum.
  • Rafhlöður.
  • Annað sem valdið getur mengun.

3. 2. Óheimilt er að blanda spilliefnum við annan úrgang eða losa þau í fráveitu. Ekki skal blanda saman mismunandi flokkum spilliefna.

3. 3. Umbúðir spilliefna skal merkja með viðeigandi hætti. Á umbúðunum skulu a.m.k. koma fram upplýsingar um eiginleika, samsetningu og magn úrgangsins.

3. 4. Spilliefnum skal safnað í lokuð traust ílát sem henta viðkomandi efnum og þau tryggilega varðveitt þar til þau eru flutt til eyðingar eða meðhöndlunar.

3. 5. Fyrirtækið skal eftir mætti daga úr myndun spilliefna, m.a. með notkun skaðlausra efna, með endurnýtingu eða endurhæfingu efna.

3. 6. Spilliefni skal ekki geyma til langframa á umráðasvæði fyrirtækisins. Spilliefnum skal skilað reglulega (a.m.k. einu sinni á ári) til aðila með leyfi til móttöku eða flutnings á viðkomandi úrgangi. Fyrirtækinu er sjálfu heimilt að annast flutninginn sé búnaður og flutningatæki fullnægjandi að mati heilbrigðiseftirlits.

3. 7. Þegar fyrirtækið afhendir spilliefni til endurvinnslustöðvar eða flutningsaðila skal það halda eftir vottorði fyrir móttökunni þar sem fram kemur magn (kg, l), flokkun og gerð úrgangs. Vottorð þessi skulu geymd í a.m.k.4 ár og liggja frammi við eftirlit í fyrirtækinu.

3. 8. Skrá skal innkaup á efnum sem geta orðið að spilliefnum. Tiltaka skal magn (kg, l) og þann flokk spilliefna sem efnið mun tilheyra.

3. 9. Leggist starfsemin niður skal öllum hættulegum efnaleifum og ónothæfum efnum skilað til móttökustöðvar fyrir spilliefni.

 

4. gr. Meðferð hættulegra efna

4. 1. Umbúðir hættulegra efna skulu merktar samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 236/1990.

4. 2. Geyma skal öll hættuleg efni og efnasambönd með öruggum hætti.

4. 3. Hættuleg efni skulu meðhöndluð af varúð og þess vandlega gætt að þau berist ekki í niðurföll, valdi umhverfisskaða eða heilsutjóni.

4. 4. Starfsfólk skal hafa fullnægjandi þekkingu á eitrunarhættu og eiginleikum þeirra efna sem það vinnur með og skulu upplýsingar þar að lútandi ávallt vera tiltækar á vinnustaðnum.

 

5. gr. Mengunarvarnir og -búnaður

5. 1. Takmarka skal loftmengun frá starfseminni eins og kostur er. Afsog frá lyktar- og leysiefnauppsprettum skal leitt upp fyrir þakbrún og hærra ef þörf krefur.

5. 2. Eftirlit og viðhald með vélum og mengunarvarnabúnaði skal ávallt vera með þeim hætti að ekki eigi sér stað óleyfileg útlosun.

5. 3. Ísogsbúnað eða ísogsefni skal hafa til taks og nota ef spilliefni leka á gólf.

 

6. gr. Ýmis ákvæði

6. 1. Eintak af skilyrðum þessum og viðkomandi lögum og reglum skulu ávallt tiltæk á vinnustað.

6. 2. Um starfsumhverfi og varnir gegn skaðlegum áhrifum á starfsmenn fer samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

6. 3. Forráðamaður fyrirtækisins ber ábyrgð á að það starfi í samræmi við skilyrði þessi.

6. 4. Tilkynna skal Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja ef starfsemi fyrirtækisins er hætt.

 

Samþykkt af Heilbrigðisnefnd Suðurnesja þann 31. ágúst 2000.

Aftur á síðu um starfsleyfisskilyrði.


157pxl.gif (826 bytes)
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Fitjum 260 Njarðvík
157pxl.gif (826 bytes)
Sími: 421 3788
Fax: 421 3766
Vefumsjón: Bergur Sigurðsson
Vefhönnun: Sverrir Ásmundsson

157pxl.gif (826 bytes)

HEIM