Starfsleyfi Sæbýli (311093-2179) til reksturs á fiskeldi við Vogavík í Vogum.

  

1. gr. Gildissvið

1. 1.        Starfsleyfi þetta gildir til eldis á allt að 150 tonnum af sandhverfu og 50 tonnum af sæeyrum á ári. Starfsleyfið gildir í tólf ár frá útgáfudegi.

1. 2.        Eigi má breyta eða auka þennan atvinnurekstur ef það getur leitt til aukinnar og/eða annarrar mengunar nema að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja sem þá ákvarðar hvort gefa þurfi út nýtt starfsleyfi, sbr. 18. gr. rg. 785/1999.

1. 3.        Heimilt er að endurskoða starfsleyfisskilyrðin ef í ljós koma annmarkar á framkvæmd þeirra eða í ljós koma skaðleg áhrif á umhverfi sem ekki voru ljós fyrir. Sama gildir ef fram koma almennar kröfur eða ný tækni er leiða til bættra mengunarvarna. Sbr. 21. og 13. gr. rg. 785/1999.

 

2. gr. Meðferð hættulegra efna

2. 1.        Geyma skal öll hættuleg efni og efnasambönd með öruggum hætti.

2. 2.        Hættuleg efni skulu meðhöndluð af varúð og þess vandlega gætt að þau hvorki berist í niðurföll né geti á annan hátt valdið umhverfisskaða eða heilsutjóni.

2. 3.        Starfsfólk skal hafa fullnægjandi þekkingu á eitrunarhættu og eiginleikum þeirra efna sem það vinnur með og skulu upplýsingar þar að lútandi ávallt vera tiltækar á vinnustaðnum.

2. 4.        Um varnir gegn skaðlegum áhrifum á starfsmenn og starfsumhverfi fer samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

 

3. gr. Um úrgang

3. 1.        Rekstraraðilar skulu markvisst og stöðugt vinna að því að draga úr úrgangsmyndun eins og kostur er.  Stöðugt skal reynt að finna leiðir til endurnýtingar á úrgangi og ber fyrirtækinu að tileinka sér þau endurnýtingarúrræði sem eru fyrir hendi hverju sinni.

3. 2.        Urðun og brennsla á úrgangi er óheimil á athafnasvæði fyrirtækisins og skal allur úrgangur fluttur til eyðingar eða endurvinnslu hjá aðila með starfsleyfi skv. rg. 785/1999.

3. 3.        Sorphirslur og ílát undir úrgang skulu standast kröfur heilbrigðiseftirlitsins.  Sérstaklega skal þess gætt að meindýr og vargfugl komist ekki í úrganginn.

3. 4.        Öllum spilliefnum s.s. olíusora, lyfjaleifum og efnaúrgangi skal skila reglulega til aðila sem hafa starfsleyfi til móttöku spilliefna, skv. rg. 785/1999. Við afhendingu skal haldið eftir vottorði fyrir móttökunni þar sem fram kemur magn (massi eða rúmmál), og gerð úrgangs, sbr. 11. gr. rg. 806/1999.

 

4. gr. Um frárennsli

4. 1.        Allt frárennsli frá starfsmannaaðstöðu og salernum á vinnusvæði skal leitt í rotþró. Um fyrirkomulag og staðsetningu rotþróa skal fara samkvæmt útgefnum leiðbeiningum Umhverfisstofnunar og fyrirmælum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

4. 2.        Þurrefni sem hreinsað eru úr notuðum sjó, til endurnotkunar á sjónum, skal endurnýtt eða komið í löglega förgun á landi. Tímasett áætlun um nauðsynlegar úrbætur vegna þessa skal send Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, sbr. ákv. 5.1 um áætlun til úrbóta.

4. 3.        Frárennsli frá eldiskerjum skal hreinsað og leitt, með fráveitulögn, til sjávar með hætti sem heilbrigðisnefnd Suðurnesja getur fallist á, sbr. ákv. 5.2 um áætlun til úrbóta.

4. 4.        Þannig skal gengið frá fráveitu að við útrás sé hvergi að finna, sbr. fylgiskjal 1 í rg. 798/1999.

·        set eða útfellingar

·        þekjur af rotverum

·        olíu eða froðu

·        sorp eða aðra aðskotahluti

·        efni sem valda óþægilegri lykt, lit eða gruggi

 

5. gr. Ákvæði til bráðabirgða og önnur ákvæði

5. 1.        U.þ.b. 40% af þeim sjó sem notaður er í stöðinni er endurnotaður. Fyrir endurnotkun er þurrefni hreinsað úr honum í þar til gerðri skilju. Eigi síðar en 1. september 2004 skal fyrirtækið senda Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja tillögur um úrbætur, ásamt tímasettri áætlun um framkvæmd úrbótanna. Miðað skal að því að koma umræddum massa í endurnýtingu, s.s. uppgræðslu, eða í löglega förgun á landi hjá aðila með starfsleyfi skv. rgl. 785/1999.

5. 2.        Tillögur um úrbætur í fráveitumálum, ásamt tímasettri áætlun um framkvæmd úrbótanna, skal borin undir Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja eigi síðar en 1. september 2004, sbr. 7. tölulið 9. gr. rgl. 798/1999 um fráveitur og skólp.

5. 3.        Auk þessara starfsleyfisskilyrða gilda um starfsemina:

·         Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi, sbr. auglýsingu umhverfisráðuneytisins nr. 582/2000 eftir því sem við á.

·         Lög og reglugerðir sem um starfsemina, eða hugsanlegar afleyðingar hennar, fjalla og ber starfsleyfishafa að afla sér þeirra gagna og þekkja þau.

Aftur á síðu um starfsleyfisskilyrði.


157pxl.gif (826 bytes)
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Fitjum 260 Njarðvík
157pxl.gif (826 bytes)
Sími: 421 3788
Fax: 421 3766
Vefumsjón: Bergur Sigurðsson
Vefhönnun: Sverrir Ásmundsson

157pxl.gif (826 bytes)

HEIM