Starfsleyfi Hafrannsóknarstofnunar (440100-4140) til reksturs á fiskeldi að Stað í Grindavík. 1. gr. Gildissvið 1. 1. Starfsleyfi þetta gildir til rannsókna á eldi sjávarlífvera. Starfsleyfið gildir í tólf ár frá útgáfudegi. 1. 2. Eldið fer fram í átján 100 m3 eldiskerjum í eldissal og átta yfirbyggðum eldiskerjum norðan við eldishúsið sem samtals eru um 450 m3. 1. 3. Eigi má breyta eða auka þennan atvinnurekstur ef það getur leitt til aukinnar og eða annarrar mengunar nema að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja sem þá ákvarðar hvort gefa þurfi út nýtt starfsleyfi, sbr. 18. gr. rg. 785/1999. 1. 4. Heimilt er að endurskoða starfsleyfisskilyrðin ef í ljós koma annmarkar á framkvæmd þeirra eða í ljós koma skaðleg áhrif á umhverfi sem ekki voru ljós fyrir. Sama gildir ef fram koma almennar kröfur eða ný tækni er leiða til bættra mengunarvarna. Sbr. 21. og 13. gr. rg. 785/1999. 2. gr. Meðferð hættulegra efna 2. 1. Geyma skal öll hættuleg efni og efnasambönd með öruggum hætti. 2. 2. Hættuleg efni skulu meðhöndluð af varúð og þess vandlega gætt að þau hvorki berist í niðurföll né geti á annan hátt valdið umhverfisskaða eða heilsutjóni. 2. 3. Starfsfólk skal hafa fullnægjandi þekkingu á eitrunarhættu og eiginleikum þeirra efna sem það vinnur með og skulu upplýsingar þar að lútandi ávallt vera tiltækar á vinnustaðnum. 2. 4. Um varnir gegn skaðlegum áhrifum á starfsmenn og starfsumhverfi fer samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. 3. gr. Um úrgang 3. 1. Rekstraraðilar skulu markvisst og stöðugt vinna að því að draga úr úrgangsmyndun eins og kostur er. Stöðugt skal reynt að finna leiðir til endurnýtingar á úrgangi og ber fyrirtækinu að tileinka sér þau endurnýtingarúrræði sem eru fyrir hendi hverju sinni. Rekstraraðili skal taka til sérstakrar skoðunar hvort hægt sé að endurnýta eftirfarandi úrgang: a. Lífrænar agnir úr fráveitu stöðvarinnar. T.d. til uppgræðslu á athafnarsvæði fyrirtækisins. b. Fisk sem hefur verið slátrað að lokinni hrogna- eða svilatöku. T.d. í refa eða minkafóður. 3. 2. Urðun og brennsla á úrgangi er óheimil á athafnasvæði fyrirtækisins og skal allur úrgangur fluttur til eyðingar eða endurvinnslu hjá aðila með starfsleyfi skv. rg. 785/1999. 3. 3. Sorphirslur og ílát undir úrgang skulu standast kröfur heilbrigðiseftirlitsins. Sérstaklega skal þess gætt að meindýr og vargfugl komist ekki í úrganginn. 3. 4. Öllum spilliefnum s.s. olíusora, lyfjaleifum og efnaúrgangi skal skila reglulega til aðila sem hafa starfsleyfi til móttöku spilliefna, skv. rg. 785/1999. Við afhendingu skal haldið eftir vottorði fyrir móttökunni þar sem fram kemur magn (massi eða rúmmál), og gerð úrgangs, sbr. 11. gr. rg. 806/1999. 4. gr. Um frárennsli 4. 1. Allt frárennsli frá starfsmannaaðstöðu og salernum á vinnusvæði skal leitt í rotþró. Um fyrirkomulag og staðsetningu rotþróa skal fara samkvæmt útgefnum leiðbeiningum Umhverfisstofnunar og fyrirmælum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. 4. 2. Frárennsli frá eldiskerjum skal leitt, með fráveitulögn, til sjávar með hætti sem heilbrigðisnefnd Suðurnesja getur fallist á, sbr. ákv. 5.1 um áætlun til úrbóta. 4. 3. Þannig skal gengið frá fráveitu að við útrás sé hvergi að finna, sbr. fylgiskjal 1 í rg. 798/1999.
5. gr. Ákvæði til bráðabirgða og önnur ákvæði 5. 1. Tillögur um úrbætur í fráveitumálum, ásamt tímasettri áætlun um framkvæmd úrbótanna, skal borin undir Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja eigi síðar en 1. september 2004, sbr. 7. tölulið 9. gr. rgl. 798/1999 um fráveitur og skólp. 5. 2. Auk þessara starfsleyfisskilyrða gilda um starfsemina:
Samþykkt af Heilbrigðisnefnd þann 12. desember 2003 |
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja Fitjum 260 Njarðvík |
Sími: 421 3788 Fax: 421 3766 |
Vefumsjón: Bergur Sigurðsson Vefhönnun: Sverrir Ásmundsson |