Starfsleyfi Stofnfisks hf. (620391-1079) til reksturs á fiskeldi að Kirkjuvogi 13, Höfnum í Reykjanesbæ. 1. gr. Gildissvið 1. 1.
Starfsleyfi þetta gildir til rannsókna
á eldi sjávarlífvera. Starfsleyfið
gildir í tólf ár frá útgáfudegi. 1. 2.
Lífmassi í stöðinni skal að hámarki
vera 50 tonn en á ársgrundvelli skal meðallífmassi
í stöðinni ekki fara yfir 30 tonn. 1.3.
Eigi má breyta eða auka þennan
atvinnurekstur ef það getur leitt til
aukinnar og eða annarrar mengunar nema að
höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit
Suðurnesja sem þá ákvarðar hvort
gefa þurfi út nýtt starfsleyfi, sbr.
18. gr. rgl. 785/1999. 2. gr. Meðferð hættulegra efna 2.1.
Geyma skal öll hættuleg efni og
efnasambönd með öruggum hætti. 2.2.
Hættuleg efni skulu meðhöndluð af varúð
og þess vandlega gætt að þau hvorki
berist í niðurföll né geti á annan hátt
valdið umhverfisskaða eða heilsutjóni. 2.3.
Starfsfólk skal hafa fullnægjandi þekkingu
á eitrunarhættu og eiginleikum þeirra
efna sem það vinnur með og skulu upplýsingar
þar að lútandi ávallt vera tiltækar
á vinnustaðnum. 3.
gr. Um úrgang 3.1.
Rekstraraðilar skulu markvisst og stöðugt
vinna að því að draga úr úrgangsmyndun
eins og kostur er. Stöðugt skal reynt að
finna leiðir til endurnýtingar á úrgangi
og ber fyrirtækinu að tileinka sér þau
endurnýtingarúrræði sem eru fyrir
hendi hverju sinni. 3.2.
Urðun og brennsla á úrgangi er óheimil
á athafnasvæði fyrirtækisins og skal
allur úrgangur fluttur til eyðingar eða
endurvinnslu hjá aðila með starfsleyfi
skv. rgl. 785/1999. 3. 3.
Sorphirslur og ílát undir úrgang skulu
standast kröfur heilbrigðiseftirlitsins.
Sérstaklega skal þess gætt að meindýr
og vargfugl komist ekki í úrganginn. 3.4.
Öllum spilliefnum s.s. olíusora,
lyfjaleifum og efnaúrgangi skal skila
reglulega til aðila sem hafa starfsleyfi
til móttöku spilliefna, skv. rgl.
785/1999. Við afhendingu skal haldið
eftir vottorði fyrir móttökunni þar
sem fram kemur magn (massi eða rúmmál),
og gerð úrgangs, sbr. 11. gr. rgl.
806/1999. 3.5.
Allt frárennsli frá starfsmannaaðstöðu
og salernum á vinnusvæði skal leitt í
rotþró. Um fyrirkomulag og staðsetningu
rotþróa skal fara samkvæmt útgefnum
leiðbeiningum Hollustuverndar ríkisins
og fyrirmælum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. 3.6.
Frárennsli frá eldiskerjum skal leitt
til sjávar. 3.7.
Þannig skal gengið frá fráveitu að
við útrás sé hvergi að finna, sbr.
fylgiskjal 1 í rgl. 798/1999.
|
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja Fitjum 260 Njarðvík |
Sími: 421 3788 Fax: 421 3766 |
Vefumsjón: Bergur Sigurðsson Vefhönnun: Sverrir Ásmundsson |