Starfsleyfisskilyrði fyrir stálsmíði og blikksmíði
(járn og vélsmiðjur)

 

1.gr. Gildissvið

1.1. Starfsleyfi þetta gildir fyrir járnsmiðjur, vélsmiðjur og blikksmiðjur.  Starfsleyfið fellur úr gildi ef skipt er um eigendur eða húsnæði.

1.2. Verði meiriháttar breytingar á rekstrinum eða breyting sem gæti leitt til aukinnar mengunar að mati Heilbrigðiseftirlitsins ber að sækja um starfsleyfi að nýju.

1.3. Heimilt er að endurskoða starfsleyfisskilyrðin ef í ljós koma annmarkar á framkvæmd þeirra eða í ljós koma skaðleg áhrif á umhverfi sem ekki voru ljós fyrir. Sama gildir ef fram koma almennar kröfur eða ný tækni er leiða til bættra mengunarvarna.

 

2. gr. Almenn atriði

2. 1. Starfseminni skal þannig hagað að hún valdi ekki nágrönnum eða fólki í nærliggjandi húsakynnum óþægindum vegna lyktar eða ónæðis.

2. 2. Takmarka skal hávaða frá starfseminni eftir því sem kostur er. Hávaði við lóðarmörk skal uppfylla viðmiðunarmörk fyrir hávaða skv. reglugerð nr. 933/1999.

2. 3. Rekstraraðila er skylt að halda húsnæði og lóð snyrtilegu. Sorphirslur og ílát undir úrgang skulu standast kröfur heilbrigðiseftirlitsins.

 

3. gr. Spilliefni

3. 1. Eftirfarandi flokkast sem spilliefni, sbr. mengunarvarnareglugerð nr. 810/1999.

  • Úrgangsolíur og olíuleifar s.s. smurolíur, hýdrólískar olíur, bensín, smurfeiti og díselolíur.
  • Málning, lakk, þynnir, önnur lífræn leysiefni og afgangar þessara efna s.s. málningarleifar í dósum.
  • Hreinsiefni fyrir vélar og vélarhluti.
  • Kæliolíur og -vökvar (>50% glýkól).
  • Olíusíur.
  • Rafgeymar og rafhlöður.
  • Asbesthlutir svo sem bremsuborðar.
  • Tuskur og tvistur mengaðar olíu eða lífrænum leysiefnum.
  • Lútar og sýrur.
  • Annað sem valdið getur mengun.

3. 2. Óheimilt er að blanda spilliefnum við annan úrgang eða losa þau í fráveitu. Ekki skal blanda saman mismunandi flokkum spilliefna.

3. 3. Umbúðir spilliefna skal merkja með viðeigandi hætti. Á umbúðunum skulu a.m.k. koma fram upplýsingar um eiginleika, samsetningu og magn úrgangsins.

3. 4. Spilliefnum skal safnað í lokuð traust ílát sem henta viðkomandi efnum og þau tryggilega varðveitt þar til þau eru flutt til eyðingar eða meðhöndlunar.

3. 5. Fyrirtækið skal eftir mætti daga úr myndun spilliefna, m.a. með notkun skaðlausra efna, með endurnýtingu eða endurhæfingu efna.

3. 6. Spilliefni skal ekki geyma til langframa á umráðasvæði fyrirtækisins. Spilliefnum skal skilað reglulega (a.m.k. einu sinni á ári) til aðila með leyfi til móttöku eða flutnings á viðkomandi úrgangi. Fyrirtækinu er sjálfu heimilt að annast flutninginn sé búnaður og flutningatæki fullnægjandi að mati heilbrigðiseftirlits.

3. 7. Þegar fyrirtækið afhendir spilliefni til endurvinnslustöðvar eða flutningsaðila skal það halda eftir vottorði fyrir móttökunni þar sem fram kemur magn (kg, l), flokkun og gerð úrgangs. Vottorð þessi skulu geymd í a.m.k.4 ár og liggja frammi við eftirlit í fyrirtækinu.

3. 8. Skrá skal innkaup á efnum sem geta orðið að spilliefnum. Tiltaka skal magn (kg, l) og þann flokk spilliefna sem efnið mun tilheyra.

3. 9. Leggist starfsemin niður skal öllum hættulegum efnaleifum og ónothæfum efnum skilað til móttökustöðvar fyrir spilliefni.

 

4. gr. Meðferð hættulegra efna

4. 1. Umbúðir hættulegra efna skulu merktar samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 236/1990.

4. 2. Geyma skal öll hættuleg efni og efnasambönd á öruggan hátt.

4. 3. Hættuleg efni skulu meðhöndluð af varúð og þess vandlega gætt að þau hvorki berist í niðurföll né geti á annan hátt valdið umhverfisskaða eða heilsutjóni.

4. 4. Starfsfólk skal hafa fullnægjandi þekkingu á eitrunarhættu og eiginleikum þeirra efna sem það vinnur með og skulu upplýsingar þar að lútandi ávallt vera tiltækar á vinnustaðnum.

 

5. gr. Mengunarvarnir og -búnaður

5.1. Takmarka skal loftmengun frá starfseminni eins og kostur er. Ef í ljós kemur engu síður að loftmengun frá starfseminni veldur fólki á nærliggjandi lóð óþægindum, þá er heilbrigðisnefnd heimilt að krefjast sérstaks mengunarvarnabúnaðar.

5.2. Ef þvo á vélar og tæki eða hluta þeirra utandyra skal það gert á föstu vökvaheldu plani með afrennsli um olíuskilju. Fyrirtækið skal ávallt leitast við að velja sem minnst mengandi aðferð til vélarþvottar s.s. lokuð kerfi án leysiefna t.d. gufuþvott og háþrýstiþvott.

5.3. Eftirlit og viðhald með vélum og mengunarvarnabúnaði skal ávallt vera með þeim hætti að ekki eigi sér stað óleyfileg útlosun.

5.4. Ísogsbúnað eða -efni skal hafa til taks og nota ef spilliefni leka á gólf.

 

6. gr. Ýmis ákvæði

6.1. Eintak af skilyrðum þessum og viðkomandi lögum og reglum skulu ávallt tiltæk á vinnustað.

6.2. Um starfsumhverfi og varnir gegn skaðlegum áhrifum á starfsmenn fer samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

6.3. Forráðamaður fyrirtækisins ber ábyrgð á að það starfi í samræmi við skilyrði þessi.

6.4. Tilkynna skal Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja ef starfsemi fyrirtækisins er hætt.

 

Samþykkt af Heilbrigðisnefnd Suðurnesja þann 7. nóvember 2000.

Samþykkt af varnarmálaskrifstofu þann 14. mars 2001.

Aftur á síðu um starfsleyfisskilyrði.


157pxl.gif (826 bytes)
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Fitjum 260 Njarðvík
157pxl.gif (826 bytes)
Sími: 421 3788
Fax: 421 3766
Vefumsjón: Bergur Sigurðsson
Vefhönnun: Sverrir Ásmundsson

157pxl.gif (826 bytes)

HEIM