Starfsleyfisskilyrði fyrir bensínstöðvar

 

1. gr. Gildissvið

1. 1.     Starfsleyfi þetta gildir fyrir bensínstöðvar.

1. 2.     Ef fyrirtækið skiptir um eigendur, húsnæði eða verður fyrir öðrum meiri háttar rekstrarbreytingum þarf að sækja um starfsleyfi að nýju.  Verði á breytingar sem að mati Heilbrigðiseftirlitsins geta leitt til aukinnar mengunar ber að sækja um starfsleyfi að nýju.

1. 3.     Heimilt er að endurskoða starfsleyfisskilyrðin ef í ljós koma annmarkar á framkvæmd þeirra.  Sama gildir ef fram koma almennar kröfur eða ný tækni er leiða til bættra mengunarvarna.

 

2. gr. Almenn atriði

2. 1.     Starfseminni skal þannig hagað að hún valdi ekki nágrönnum eða fólki í nærliggjandi húsakynnum óþægindum vegna lyktar eða ónæðis.

2. 2.     Takmarka skal hávaða frá starfseminni eftir því sem kostur er. Hávaði við lóðarmörk skal uppfylla viðmiðunarmörk fyrir hávaða skv. reglugerð nr. 933/1999.

2. 3.     Rekstraraðila er skylt að halda húsnæði og lóð snyrtilegu. Sorphirslur og ílát undir úrgang skulu standast kröfur heilbrigðiseftirlitsins.

 

3. gr. Spilliefni

3. 1.     Eftirfarandi flokkast sem spilliefni, sbr. mengunarvarnareglugerð nr. 810/1999.

  • Úrgangsolíur og olíuleifar s.s. smurolíur, hydriolískar olíur, bensín, smurfeiti og díselolíur.

  • Málning, lakk, þynnir, önnur lífræn leysiefni og afgangar þessara efna s.s. málningarleifar í dósum.

  • Hreinsiefni fyrir vélar og vélarhluti.

  • Kæliolíur og -vökvar (>50% glykol).

  • Olíusíur.

  • Rafgeymar og rafhlöður.

  • Asbesthlutir svo sem bremsuborðar.

  • Tuskur og tvistur mengaðar olíu eða lífrænum leysiefnum.

  • Annað sem valdið getur mengun.

3. 2.     Óheimilt er að blanda spilliefnum við annan úrgang eða losa þau í fráveitu.  Ekki skal blanda saman mismunandi flokkum spilliefna.

3. 3.     Umbúðir spilliefna skal merkja með viðeigandi hætti.  Á umbúðunum skulu a.m.k. koma fram upplýsingar um eiginleika, samsetningu og magn úrgangsins.

3. 4.     Spilliefnum skal safnað í lokuð traust ílát sem henta viðkomandi efnum og þau tryggilega varðveitt þar til þau eru flutt til eyðingar eða meðhöndlunar.

3. 5.     Fyrirtækið skal eftir mætti daga úr myndun spilliefna, m.a. með notkun skaðlausra efna, með endurnýtingu eða endurhæfingu efna.

3. 6.     Spilliefni skal ekki geyma til langframa á umráðasvæði fyrirtækisins. Spilliefnum skal skilað reglulega (a.m.k. einu sinni á ári) til aðila með leyfi til móttöku eða flutnings á viðkomandi úrgangi.  Fyrirtækinu er sjálfu heimilt að annast flutninginn sé búnaður og flutningatæki fullnægjandi að mati heilbrigðiseftirlits.

3. 7.     Þegar fyrirtækið afhendir spilliefni til endurvinnslustöðvar eða flutningsaðila skal það halda eftir vottorði fyrir móttökunni þar sem fram kemur magn (kg, l), flokkun og gerð úrgangs.  Vottorð þessi skulu geymd í a.m.k. 4 ár og liggja frammi við eftirlit í fyrirtækinu.

3. 8.     Leggist starfsemin niður skal öllum hættulegum efnaleifum og ónothæfum efnum skilað til móttökustöðvar fyrir spilliefni.

 

4. gr. Meðferð hættulegra efna

4. 1.     Umbúðir hættulegra efna skulu merktar samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 236/1990.

4. 2.     Geyma skal öll hættuleg efni og efnasambönd með öruggum hætti.

4. 3.     Hættuleg efni skulu meðhöndluð af varúð og þess vandlega gætt að þau berist ekki í niðurföll, valdi umhverfisskaða eða heilsutjóni.

4. 4.     Starfsfólk skal hafa fullnægjandi þekkingu á eitrunarhættu og eiginleikum þeirra efna sem það vinnur með og skulu upplýsingar þar að lútandi ávallt vera tiltækar á vinnustaðnum.

 

5. gr. Mengunarvarnir og -búnaður

5. 1.     Takmarka skal loftmengun frá starfseminni eins og kostur er. Ef í ljós kemur engu síður að loftmengun frá starfseminni veldur fólki á nærliggjandi lóð óþægindum, þá er heilbrigðisnefnd heimilt að krefjast sérstaks mengunarvarnabúnaðar.

5. 2.     Ef þvo á vélar og tæki eða hluta þeirra utandyra skal það gert á föstu vökvaheldu plani með afrennsli um olíuskilju. Fyrirtækið skal ávallt leitast við að velja sem minnst mengandi aðferð til vélarþvottar s.s. lokuð kerfi án leysiefna t.d. gufuþvott og háþrýstiþvott. 

5. 3.     Eftirlit og viðhald með vélum og mengunarvarnabúnaði skal ávallt vera með þeim hætti að ekki eigi sér stað óleyfileg útlosun.

5. 4.     Ísogsbúnað eða ísogsefni skal hafa til taks og nota ef spilliefni leka á gólf.

5. 5.     Afrennsli af afgreiðslusvæði og áfyllingarsvæði skal leitt í olíuskilju.  Olíuskilja skal vera í samræmi við leiðbeiningar Hollustuverndar ríkisins um olíuskiljur (1992) og kröfur Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja.

5. 6.     Afgreiðslu- og áfyllingarhlöð skulu vera steypt.

 

6. gr. Eigið eftirlit og rekstrarhandbók

6. 1.     Fyrirtækið skal útbúa rekstrarhandbók sem skilgreinir framkvæmd innra eftirlits fyrirtækisins.

6. 2.     Innra eftirlit fyrirtækisins skal skráð með skipulögðum hætti í rekstrarhandbók.

6. 3.     Rekstrarhandbók skal ávallt aðgengileg þegar eftirlit Heilbrigðiseftirlitsins fer fram.

6. 4.     Eigi síðar en 1. mars ár hvert skal skila heilbrigðisnefnd umhverfisskýrslu fyrir síðasta almanaksár.  Þar skal a.m.k. gert grein fyrir þeim umhverfis óhöppum sem kunna að hafa átt sér stað á liðnu ári og stutt samantekt á niðurstöðum innra eftirlits.

 

7. gr. Ýmis ákvæði

7. 1.     Eintak af skilyrðum þessum og viðkomandi lögum og reglum skulu ávallt tiltæk á vinnustað.

7. 2.     Um starfsumhverfi og varnir gegn skaðlegum áhrifum á starfsmenn fer samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

7. 3.     Forráðamaður fyrirtækisins ber ábyrgð á að það starfi í samræmi við skilyrði þessi.

7. 4.     Tilkynna skal Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja ef starfsemi fyrirtækisins er hætt.

 

8. gr. Ákvæði til bráðabirgða

8. 1.     Drög að rekstrarhandbók skal afhent Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja til umsagnar eigi síðar en þrem mánuðum eftir að starfsleyfi þetta hefur verið veitt.  Í drögunum skal a.m.k. koma fram hve oft og hvernig eftirfarandi þættir fara fram.

  • Eftirlit með olíuskiljum.

  • Þrýsti- og lekaprófanir, á tönkum og leiðslum.

  • Eftirlit og viðhald á lekavarnarbúnaði.

 

Samþykkt af Heilbrigðisnefnd Suðurnesja þann 7. nóvember 2000.

Aftur á síðu um starfsleyfisskilyrði.


157pxl.gif (826 bytes)
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja
Fitjum 260 Njarðvík
157pxl.gif (826 bytes)
Sími: 421 3788
Fax: 421 3766
Vefumsjón: Bergur Sigurðsson
Vefhönnun: Sverrir Ásmundsson

157pxl.gif (826 bytes)

HEIM